Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd (RBF) er rannsókna- og fræðslustofnun.
Rannsóknastofnuninni er ætlað að vera víðtækur vettvangur rannsókna á sviði félagsráðgjafar, einkum öllu því er lýtur að stefnumörkun, þróun og þjónustu í barna- og fjölskylduvernd sem spannar allt lífsskeiðið frá æsku til efri ára. Markmið RBF er jafnframt að miðla vísindalegri þekkingu um félagsráðgjöf og laða fræðimenn til starfa á þessu sviði.
Stofnunin var formlega opnuð 12. maí 2006; er starfrækt í félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og heyrir undir Félagsvísindastofnun.
Vefsíða RBF var opnuð 7. júní 2006 með helstu grunnupplýsingum og hefur verið í stöðugri mótun. Ný og endurbætt heimasíða RBF var opnuð 9. apríl 2010.
Hafðu samband:
Sími: +354 525 5200
Netfang: rbf@hi.is